Jájá kallinn bara útskrifaður... ;)Oddgeir Eiríksson
http://ja.is/simaskra?q=oddgeir+eir%C3%ADksson
Ég var spurður að því hjá símanum hvað litafræðingur gerði þegar ég hringdi og tilkynnti mitt starfsheiti. Það var frekar fátt um svör en ég svaraði því að þeir sæu um allskonar faglega ráðgjöf við val á litum og aðstoðuðu málara og arkitekta!! ;) Segir það sig ekki sjálft?? ;)
Geðveikt skemmtileg helgi :)Oddgeir Eiríksson
Hvað er að gerast.. Maður er bara alltaf að blogga þessa dagana. Menn hafa líka svo duglegir að kommenta... EINMITT.. hehe;) En hún Elísabet mín stendur sig nú vel í því eins og alltaf;)
Helgin var bara mjög vel heppnuð. Við vorum nú bara slök á föstudagskvöldið. Voða rólegheit. Svo vöknuðum við á laugardagsmorguninn. Ég vaknaði náttúrulega langt á undan Elísabetu.. Ég lét mér bara dauðleiðast þangað til hún vaknaði hehe. Æ þessi elska;) Svo loksins þegar hún vaknaði hehe þá fórum við upp í sveit að taka til og græja í Kotinu. Svo drifum við okkur á Selfoss og fórum að gera okkur tilbúin fyrir árshátíðina hjá 365:)
Elísabet keyrði í bæinn. Það var vægast sagt brjálað veður. Við sáum bara eina og eina stiku í einu. Geðveikt blint sko. Við vorum fremst í röðinni en Elísabet ofurökumaður hún kom okkur heilu á höldnu yfir heiðina... Ég tók nú viskípelann og einn bjór með mér í nestið en ég var svo stressaður að ég snerti hvorki viskíið né bjórinn hehehe;) Þegar við komum svo að litlu kaffistofunni sáum við í speglinum að það voru svona 40 bílar eða e-ð fyrir aftan okkur... Hver hefði trúað því að 19.ára gömul fegurðardrottning myndi leiða alla þessa bíla yfir heiðina;)
En svo mættum við í Valsheimilið.. Þar var einhver svona grísk þema eða e-ð. Þjónarnir allir með grímur, fólk á stulltum og eð voða sniðugt. Daníel Ágúst söng yfir matnum sem var svaka fínn. Rauðvín, hvítvín og Koníak og allt svaka fansí. Svo var að sjálfsögu bar. Ég lagði mitt af mörkum í að reyna að klára hann. Ég er ekki viss um að Jónbjörg vinkona mín í Landsbankanum verði jafn ánægð með mig þegar ég fer að útskíra allar þessar færslur á kortinu mínu hehe;) Stebbi Hilmars spilaði svo á ballinu.. Geðveikt gaman..!!!:) Ragga Gísla söng eð með honum líka.
Það voru náttúrulega allir þessir frægu þarna. Ég hitti Sveppa og Ívar Guðmunds á klósettinu. Átti mjög gott spjall við Kolb vin minn. (Kolb er auðvitað enginn annar en metrógoðið Ásgeir Kolbeins hehe). Svo var Unnur Birna þarna líka, hún vildi e-ð voða spjalla en ég sagði henni að við yrðum aldrei neitt annað en vinir því ég væri í föstu sambandi með tilvonandi ungfrú Selfoss. Hún var voða abbó;) Kjellinn að gera góða hluti hehe;) Ég var svo í því hlutverki að fá “lánaðar” grímur og hatta á ballinu.. hehehe fylltum bílinn af soleiðis dóti. Því eins og allir vita að þá dýrka ég svona hatta og grímur og allskyns ( hey allskyns ) þessháttar dót;)
Svo nenntum við ekki að hanga meira með þessu fræga liði og ákváðum þá að kikja í Kaplakrika. Á þorrablótið hjá Hafnfirðingum. Þar var líka geðveikt gaman.. Stebbi Hilmars líka að spila þar:) Það var bara eins og maður væri á Sálarballi.. dönsuðum af okkur lappirnar. Við fórum bara tvö. Ég þekkti e-ð 5 á ballinu eða e-ð. Við erum líka svo geðveikt skemmtileg að við þurfum ekkert nema hvort annað.Ég gerði líka heiðarlega tilraun að reyna að klára FH barinn. Ég kláraði ekki barinn en ég hugsa að Jónbjörg hafi vaknað í hvert skipti sem kortið rann í gegnum posann;) hehe. Reyndar klúður með jakkafötin mín.. Tókst að rífa þau einhvernveginn.. Það var samt alveg þess virði. Kaupi bara ný þegar Jónbjörg lætur mig hafa kortið mitt aftur hehehe;)
Eftir ballið þá var klukkan orðin svo margt eð að við ákváðum bara að sofa heima hjá tengdó.
Sunnudagurinn var e-ð voða slappur. Elísabet á æfingu og vinna alveg til 10 og ég einn uppi í sveit að taka meira til.
En eins og ég sagði þá var svakalega gaman um helgina:):) mjög vel heppnuð helgi;)
Og koma svo.. allir í bátana og kommenta;)
Kominn tími á nýtt blogg...Oddgeir Eiríksson
Hehehe Elísabet þessi elska var að koma heim og bjargaði þessu fyrir mig.. Fann það sem glataðist og allt:) Ég ætla aldrei að reyna að blogga einn aftur.. hehehe;)
Ég vil byrja á að þakka fólki fyrir að kjósa í skoðanakönnunum mínumJ Fólk er furðu ághugasamt um það. Auðvitað var það hún Elísabet mín sem festi bílinn. En hún er nú svo sæt að ég fyrirgaf henni það alveg;* Skrítið hvað margir kusu að ég hefði gert það..?? Trúlega kaldhæðni..
Svo var það Selfossþorrablótið laugardaginn 26jan. Fossraf bauð öllum starfsmönnum og mökum í matinn og á ballið. Það var ótrúlega gaman þó að við hefðum allsekki verið að nenna því að fara. Ég reyndar bjóst við að þekkja fleiri á blótinu en ég gerði.. Það slapp samt alveg til. Elísabet var á fullu allt kvöldið að taka myndir á myndavélina hans Gunna Þórs (hann sér um að taka myndir fyrir suðurland.is eða e-ð man það ekki) og sagði öllum að hún væri að mynda fyrir Séð og Heyrt hehehe snilld.. allir að biðja um að sjá myndirnar af sér og taka aftur því þessi og þessi hefði verið svo asnaleg því enginn vill jú vara asnalegur í Séð og heyrt;) Gunni greyið kjagaði svo bara á eftir henni að passa myndavélina sína hehe;)
Við fórum út að borða á föstudaginn um daginn um kvöldið samt;) Nautakjöt og bernes á hótelinu með kengúrusalati og súkkulaðiköku. Nýta tilboðið frá því á bóndadaginn. GEÐVEIKT gott sko.. Elísabetu fannst e-ð skrítið að fara út að borða þar af því að hún er svo vön að þjóna þar og að Lovísa skvísa væri að þjóna okkur.. Mér fannst það samt mjög eðlilegt;) Hún stóð sig mjög vel í því.. Full skál af sultu og allt!!;) Ég fór svo upp í sveit á laugardaginn að byrja aðeins að taka til í stofunni stóru í kotinu.. heilmikið eftir samt. Þar á nefninlega að vera fjölskyldu Þorrablót eftir viku.. bara gaman;)
Svo er það aðaldæmi vikunar maður... Árshátíðin hjá 365;) Elísabet er nefninlega ofurbókhaldari hjá þeim og því erum við að fara þangað! Það verður e-ð megaJ Stebbi Hilmars og fína, fræga og fallega fólkið.. (við erum inni í fína og fallega fólkið;) )
Voða rólegt allt hjá mér e-ð.. lítið spennandi.. Mikill snjór og engin skítkeyrsla þessa dagana. Ég er komin með fráhvarfseinkenni að hafa ekki keyrt Fendtinn svona lengi. Tek nú aðeins í hann og fjórhjólið á laugardaginn;)
En ekki meir af leiðinda rugli í bili...
AAAAAAAAARRRRRRGOddgeir Eiríksson
Hálviti... Var búinn að blogga þvílikt langt en svo vistaðist það ekki og hvarf:(ohhh þið fáið þá ekkert blogg í dag.. Nenni ekki að skrifa þetta aftur...
Sorry.. Reyni aftur á morgunn ég ætla að fara að reyna að róa mínu pirruðu taugar!!!
Þorrablót og enn meiri Þorrablót...Oddgeir Eiríksson
Við Elísabet skelltum okkur á þorrablótið í Árnesi í gærkvöldi. Það var rosalega gaman.. Ég reyndar var fyrir rosalega miklum vonbrygðum með skemmtiatriðin. Þau voru bara ekkert spes fannst mér. En maturinn var mjög góður og bætti þau upp, borðaði líka alveg fyrir miðanum mínum og vel það;) Elísabet mín hún lét þetta súrsaða alveg eiga sig og hélt sér bara við hangikjötið. En hún kom mér vel á óvart og borðaði hákarl.. Bara alveg eins og sönnum fegurðardrottningum sæmir hehe;) Við fórum reyndar bara snemma heim.. Vorum komin heim í kot e-ð um tvöleytið held ég..
Svo var bóndadagurinn í gær.. Elísabet mín. þessi elska gaf mér bæði blóm og pakka:) Gaf mér Joe Boxer náttbuxur og vetlinga! og út að borða á föstudaginn á hótelinu;)
Ég fékk loksins svona náttbuxur, ég átti víst að fá svona í jólagjöf frá tengdamömmu en það var hætt við það því að ég var víst e-ð búinn að drulla yfir stráka sem nota svona buxur.. Notaði orð eins og ...hommalegt.. ..stelpulegt.. ..ég mun aldrei í lífinu fara í svona.. og þar fram eftir götunum..!! Elísabet fékk svona í jólagjöf og þá dauð sá ég eftir þessu því þetta er náttúrulega bara snilld að vera í þessu..Ég tek það fram að þessar buxur sem ég fékk eru alveg afspyrnu karlmannlegar og flottar;) Mér skillst að menn eins og Vin Diesel noti þær frekar mikið!! hehe tengdamamma gaf mér reyndar ansi góða gjöf og dæmi hver sem vill en hún gaf mér hrukkukrem?? Ætli ég þurfi e-ð að taka það til mín?? hehehe.. Ég er strax farinn að sjá mun;) Hvað finnst ykkur? Ég verð ekki lengi kallaður gamli eftir að ég klára hrukkukremið;)
Ég átti alltaf eftir að segja fráseinasta haugverkefni.. Það dró sosum ekki til mikilla tíðinda á meðan á því stóð. Ég fór á Fendtinum og notaði skrúfuna, þetta voru reyndar frekar erfiðar aðstæður í þessu hesthúsi. Þröngir brunnar og erfinn að snúa sér í gatinu. Gerði fyrir utan sem ég reyndar bara spændi niður.. ekki nokkur leið að komast að þessu annars! en nóg af þessu...;)
Ég er búinn að fara seinustu tvær helgar til reykjavíkur að vinna á byggingakrana hjá Ragga frænda. Gaman að ryfja upp gömlu kranataktana.. Tveir Lieberr kranar, annar meira að segja alveg nýr;) Hann er með tvö verk í Hafnarfirði, stórar blokkir, mjög gaman! en það er víst einhvert hlé á því að ég fari þangað meira.. Maður finnur sér þá bara eitthvað annað að gera;)
Svo er það Þorrablótið á Selfossi í kvöld.. Ég er nú ekkert að farast úr spenningi fyrir því sko.. En við fáum fría miða frá Fossraf þannig að um að gera að skella sér..;) And we will have the time of our life!! ;)
Svo er hún Elísabet mín að fara að taka þátt í ungfrú suðurland... Hún er langfallegust:*
Hún rúllar þessari keppni upp;) Hún verður allavega alltaf fegurðardrottningin mín;) :*
Við skelltum okkur á Krúsina núna á fimmtudaginn með Einari, Lovísu og Kareni.. Það var Pubquiz.. Við Elísabet náðum 11 stigum og unnum bjór spurningu. Jájá við stóðum okkur bara fanta vel;) Svo náðum við að festa okkur 2 á leiðinni heim.. (Þegar að ég segji við, þá meina ég ekki við heldur bara Elísabet) hehe sorry ástin mín:*) Einu sinni fyrir utan hjá Lovísu og svo í lokin fyrir utan heima.. En fyrir mitt snarræði og ökukænsku þá losuðum við okkur.. VIÐ.. hehehe;) bara gaman.. :)
Voðalega lítið annað spennandi að gerast í mínu lifi þessa dagana.. (eins og þið sem lásuð þetta vitið þið að það er búið að vera mjög spennandi;) ) hehe
Erum að fara á blótið.. Stemningin er að magnast upp;)
Og svo er fólk að segja að ég bloggi aldrei.....Oddgeir Eiríksson
Ég ætla nú ekki að fara að skrifa einhvern ægilegann áramóta annál en ég ætla stikla á mjög stóru yfir árið... J
Fyrst kom nýarsdagur.. Svo kom þorrablótið.. Svo kom Parísarferð með Vélfang sem var alveg meirháttar... Svo kom vorið með tilheyrandi traktoravinnu og blómum og grasi sem spratt mjög vel, vantaði þó vætu þar sem þurrkar voru miklir!! Svo kom fyrsti júní, þá byrjuðum við Elísabet, mín heitelskaða samanJJ Svo gerðirst sumarið.. biladagar, humarhátíð, Akranes, Eddan kom heim....
Rhodos í lok júlí, alveg meiriháttar ferð þar á ferðJ Kom alveg HEL tanaður úr þeirriferð.. Fólk er ennþá að tala um þessa svakalegu brúnku.. Fólk hélt einmitt að ég hefði farið í klefann þarna... en neinei.. kjellinn var bara á sólarströnd ber að ofan allan timann;) Sumir héldu að ég hefði verið tvær vikur á Rhodos en Elísabet mín eina viku... Þar sem ég kom klárlega mun brúnni en hún heim! Enn sannleikurinn er sá að það var öfugt, hún var tvær vikur en ég eina viku.. Ég held að það hafi verið þessi sjaldgæfi hárlitur, Kastaníubrúnn sem gerði þetta að verkum.. Lækna undur??
Gott veður í ágúst, Keypti BMW 323CI sem gerði og er að gera frábæra hluti en er til sölu núna fyrir rétta manneskju, keypti líka fjórhjól, Yamaha Raptor700 sem er víst líka til sölu;) (slóðinn oddgeirkeilar.com var lögð niður vegna dræmrar aðsóknar þannig að áhugasamir endilega kikið á nýja síðu alltáaðseljastsemoddgeirkeyptiíágúst.com til að fá frekari upplýsingar). Svo gerðist það, við elskan mín fluttum inn á Samfaraveginn 3.september:* Geðveik íbúð, 5 herbergi sko... Forstofuherbergi, stofuherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og svefnherbergi.. og jú, eldunarherbergi! 6 herbergi þá;) Frekar stór sko!!! ;) Nei þetta er mjög fín íbúð og gott að búa hérJ
Byrjaði á Rafvirkasamningnum mínum 1.okt. og er enn með vinnu þar 7-9-13 hehe;)
Svo kláraðist október...
Svo kom nóvember..
Svo kláraðist hann líka...
Svo byrjaði desember.. Ég held bara að ég hafi aldrei borðað eins mikið á einum mánuði yfirævina.. 3 jólahlaðborð og allt... Fossraf með jólamat (var reyndar i nóv en samt jólahlaðborð), Stráið var með jólahlaðborð þar sem mökum og starfsmönnum og stjúpbræðrum var boðið og fagnað mikilli velgengni Strásins og sumir segja jafnvel sigurgöngu;) og 365 þar sem Elísabet mín er að vinna hjá var með svaka boð í perlunniJ
Afmæli hjá kjellinum... skrítið að verða tvítugur tvisvar;) út að borða og party!!!
Svo komu jólin.. gleðileg jól og takk fyrir gömluJ
Ég borðaði á jólunum með fjölskyldunni í bænum.. troðið út úr dyrum, erum náttúrulega 5 talsins!!! Svo fór ég til Elísabetar og mömmu hennar og systur og opnaði pakkana þarJ
Svo tók við nokkur jólaboð á selfossi og eitt í sveitinni! Djamm og spil og e-ð milli jóla og nýárs.. J Áramótin voru stórslysalaus að mestu.. missti seyndar kex í gólfið hjá tengdapabba en það var fyrirgefið fljótlega... hehe djók!! Nei áramótin voru mjög góð.. fór upp í sveit svo kom Elísabet og sótti mig eftir matinn og við fórum til tengdapabba að horfa á skaupið og skjóta upp... Það var rosafíntJ Fórum heim i smá upphitun fyrir ballið... Það er svo mjög gaman að segja frá því að við elskurnar (Elísabet æði og Oddgeir æði) vorum edrú á ballinuJJ drukkum hvort 2 bjóra og það var alveg svakalega gaman.. Skemmtum okkur konunglegaJ hehehe vorum bara að skoða fólkið og pæla í fötunum á hljómsveitinni og e-ð.. Já maður pælir greinilega öðruvísi edrú á balliJ
Nýarsdagurinn hressi... (jú þar sem við vorum náttúrulega óþunnog útsofin skúruðum við, tókum til og fórum í bæinn á stælinn að spila hjá eddunni og e-ð..
Svo var hestakráin síðustu helgi... Mjög gaman.. og Elísabet, þessi drottning hún var að keyra.. J jú það er alveg satt.. Sagan segir að hún hafi bara verið að fíla það og muni gera það aftur og þá í alnánustu framtíð hehe;)
Hehehehehe en lýgi ársins er alveg klárlega frá strákunum... Vissuð þið að Elísabet er ólétt???
Byrjaði nú bara sem saklaust grín sko en endaði bara sem svakafrétt sem spurðist um bæinn.. hehe;) Sérstaklega þegar óléttuprófið fannst inni á baði... Það var nú bara sett þar til að stríða strákunum aðeins... J hehe en nei svona til að leiðrétta allan misskilning að þá er hún Elísabet ekki ólétt... allavega ekki ennþá.... hehehehe;) það er gaman að þessu;)
En hvað er ég eiginlega búinn að gera??? Ég skrifaði svo bara feitann áramótaannál... ég reyndar hraðspólaði nú töluvert samtJ
Samkvæmt nýjustu könnun sem gerð var á þessari síðu að þá eru diggir lesendur hennar þyrstir í meiri og nánari haughræru lýsingar... Og fyrir þá sem það vilja að þá er ísskápurinn í fínu lagi, alltaf fullur af mat og stendur fyrir sínu. Ég fer í eitt hræruverkafi á sunnudaginn og hver veit nema að ég setji inn nánar lýsingar á því verki hér inn.. Svona til að friða ykkur aðeins ætla ég að gefa ykkur forskot á sæluna að þá fer ég á Fendt716, með skrúfuna, þetta er hesthús sem tekur 40 hesta. Svo er ný könnun væntaleg...
Afmælis helgin.. 6 mánuðir :)Oddgeir Eiríksson
Þessi helgi var rosalega góðJ Margt sem var að gerast... Fórum til Reykjavíkur á föstudaginn. Ætluðum og gerðum að keyra Rut tengdmömmu og Guðrún Líf tengdasystur til keflavíkur um nóttina. Vorum ansi þreytt þegar við komum til baka frá því.. við fórum bara aftur í flétturimann og lögðum okkur.. Sumir lengur en aðrir.. Fyrir þá sem skilja það ekki að þá mun Elísabet stundum verða kölluð sumir en ég aðrir, bara svona svo þið vitið það). Aðrir fóru svo snemma um morguninn i Kringluna að undir búa smá system J Aðrir difu sig svo í sveitina að vinna meðan sumir sváfu vært...fram að hádegi.. Þegar að ég kom upp í sveit að þá var gamli í óða önn að gera klárt fyrir verkefni dagsins sem var að hræra og keyra skít á Vatnsleysu í tungunum. Við notuðum skrúfuna til að hræra sem er orðin vel endurbætt. Komin með nýjan hræri spaða á endann og stórann hring i kringum hana til að hlífa spaðanum. Virkaði mjög vel og bilaði bara ekki neitt;) Fendtinn var að sjálfsögðu spenntur við hana og aðal fendt maðurinn við stjórnvölin..;) Gamli sá svo um að keyra út á MX 135 með redrock sugunni. Caseinn var bara að standa sig helvíti vel með suguna. Náðum að tæma annað haughúsið alveg...!
Ég hætti svo í fyrrafallinu því við Elísabet áttum 6 mánaðar afmæli.. JJJ Já við eru búin að vara saman í sex mánuði.. JJ Við héldum upp á það um kvöldiðJ Ég ætlaði að koma henni á óvart þegar að hún kæmi heim um sexleitið.. Ég ætla að sleppa nánum díteilum en það beið eftir henni smá system á eldhúsborðinu.. Það kom henni mjög á óvart.. :) Ég var búinn að vera lengi að undirbúa það og plana ;) Hún kom mér líka á óvart :* Tók vel á móti mér þegar að ég kom heim og var líka með smá system fyrir mig!!:* Ég er svo endalaust ánægður með hana Elísabetu mína..!!!!!!:* Við elduðum okkur svo grísasteik, rauðvín, hvítvín, forrétt og allann pakkann.. Virkilega gott. Það var alveg eins og við værum úti að borða.. Nema að klæðnaðurinn var heldur frjálslegri.. hehehe.. Það var bara gaman hjá okkurJ Svo kíktu Hrannar og Gummi í Þjóttu til okkar og við skelltum okkur á Draugabarinn.. Brynja keyrði okkur. Það var rosalega gaman.. Fórum svo heim i rútunni og ætluðum í pullsuvagnin en það var e-ð léleg hugmynd og fórum bara á hótelið og vorum þar að borða pizzu og drekka kokteila og e-ð.. Eg verð nú að viðurkenna það að ég man nú eiginlega voðalega lítið eftir þessari hótel ferð en það skiptir ekki máli, það hlýtur að hafa verið gaman þar, allavega sögðu það allir ;) Svo heim og borða og e-ð.. Man betur eftir því! ;)
Ég náði svo að sofa i 4 tima og fór svo að klára að hræra skít á Vatnsleysu.. Þegar það var búið fór ég í Fellskot að hræra þar.. Gekk bara mjög vel að hræra þar.. Hrossaskítur og ágætisaðstaða og mikið vatn i húsinu. Dagurirnn endaði þar alltof fljót því caseinn tók upp á því að hætta að bakka.. Ég gerði heiðarlega tilraun til að ýta honum afturábak.. Það gekk eiginlega frekar hægt og því hættum við að keyra. Verð að fara þangað við fyrsta tækifæri og klára. BIGFOOT menn, case er góður og þetta er bara smotterís bilun ;)
Við fór umsvo á Menam þegar ég kom heim og keyptum take away fyrir okkur.. tókum spólu og vorum bara voða slök..
En er þetta ekki orðið ágætt í bili... ;) Meira síðar..
Sögu helgin...Oddgeir Eiríksson
Já maður er bara alltaf að blogga.. :) Það var lítið um skítkeyrslu og haughræringar þessa helgina, við Þetta var alvag svakalega góð helgi.. Við fórum á hótel Sögu á föstudaginn, vorum komin þangað rúmlega 8.. græjuðum okkur og fórum svo með taxa á Humarhúsið.. Vá hvað það var góður matur þar.. Áll og nautasystem í forrét, rauðvín, hvítvín og humatvenna í aðalrétt og ostar og annað system í eftirrétt.. Eigum við að ræða það eitthvað eða?? GEÐVEIKT gott sko.. :) Svo þegar það var búið þá fórum við í taxa.. vissum samt ekkert hvað við vildum gera þannig að við rúntuðum bara 3 hringi niður laugarveginn á taxanum, stoppuðum og keyptum nokkra bjóra og rúntuðum bara meira.. Skil aldrei þetta vesen með að redda alltaf bílstjóra á djammið.. það er nóg til af leigubílum sko.. hehe ;) við fórum svo bara upp á hótel.. já vel á minnst var ég búinn að nefna það að þetta var hótel Saga sko.. hehe ;) hittum Fannar Geir og einhvern vin hans drukkum meiri bjór þar svo komu Hanna frænka og Johnny Money til okkar og sátu með okkur heillengi.. Síðan var nú bara farið í háttinn.. og pöntuð pizza.. Elísabet þessi elska sem heimtaði pizzu, brauðstangir og sitthvað fleira sofnaði bara.. Ég hafði lika bara gott af henni sjálfur;) Við fórum svo í kringlu og smáralindarleiðangur á laugardaginn.. Við keyptum nú samt lítið.. Svo var það keilan maður..Við hittum alla í keilu rúmlega 4 í öskjuhlíðinni og það var náttúrulega eins og við manninn mælt kjellinn vann þetta allt saman.. lenti reyndar í 2 sæti fyrir mistök Ara sífulla sem geymdi kúluna sína á miðribraut og eitthvað ves og mín kúla flæktist e-ð í henni og endaði í einhverju öðru ves og (er þér farið að leiðast þessar keilulýsingar mínar?? Mér eiginlega líka.. Ég skal bara hætta að tala um keilu og ves þá á þessari síðu en vil benda áhugasömum keilulýsingaþyrstum aðdáendum mínum að fara inn á oddgeirkeilar.com og lesa betur um þetta þar) Maturinn um kvöldið á Sögu var alger snilld.. Eg tek það fram að ég borðaði alveg fyrir allan peninginn þar og skolaði því niður með rauðvíni og góðum veigum sem hún Rebekka æði bar í okkur.. ;) Djöfull er Raggi svakalega flottur.. Töffari af guðsnáð.. Ég vildi endilega að Elísabet myndi hitta hann og fá mynd af sér með honum þannig að ég fór á stúfana að reyna að græja það, svo þegar að til kom þá þorði hún ekki að hitta hann.. fannst það e-ð asnalegt og e-ð.. Hefði samt verið flott að eiga mynd að þeim samanJ Við skötuhjúin gerðum heiðarlega tilraun til að dansa saman.. Af einhverjum mjög óskiljanlegum ástæðum var það ekki að gera sig. Vorum e-ð ekki nógu full held ég og því hættum við því og fórum bara á barinn að reyna að drekka í okkur kjark;) Svo bara pizza uppi á herbargi og sofa..Við fórum aftur í kringluna á sunnudaginn og kiktum á mömmu í kaffi! Við fórum svo í allskyns skemmtilegar búðir.. traktoramódelin voru alveg að gera sig i Toys R us.. Aðeins flottara dót þar sko;) Svo keyptum við líka A012.. Vakti alveg standandi kátínu.. hehe;) Vá hvað það er ofboðslega flott...!!!!! ;)Takk fyrir helgina elsku Elísabet mín.. hún var alveg frábær..!!!! :*
Hey gaman að segja frá því að þrátt fyrir að hún gullfallega Elísabet mín hafi klúðrað mælingunni á ísskápnum eins og flestir sem tóku þátt í skoðanakönnunni voru sammála um að þá passaði ísskápurinn eftir allt saman.. eða ég réttara sagt lét hann passa.. ég braut bara 2 hillur úr eldhúsinnréttingunni og tróð honum bara inn.. Alger snilld að vera kominn með ísskáp.. J
Já maður er lifandi... ;)Oddgeir Eiríksson
Ekki örvænta gott fólk.. Því nú á eftir, já NÚNA á eftir kemur blogg fyrir síðustu vikur.. ;)JæææjaOddgeir Eiríksson
Jæja loksins er komið að því að maður er farinn að blogga! ![]()
Þessi síða er öll í undirbúningi og maður er strax farinn að heyra að þetta verði alheitasta síðan!!
... Sjáum til með það samt...
Þetta verður ekki bloggsíða með hefðbundnu sniði! Allir með traktora fettish hafa beðið eftir þessari síðu með eftirvæntingu.. Nú er loksins komið að því!!
Ég byrja nú rólega með síðuna en ég á eftir að setja inn myndir frá Frakklands- og Þýskalandsferðinni í vetur og fleiri vélarmyndir
Ég ætla nú eitthvað að minnast á mitt viðburðarríka líf líka og dagleg amstur.. ![]()
Þessi helgi var alkóhólslaus.. Aldrei þessu vant! Það var ágætis tilbreying! ;) Fórum bara snemma að sofa á föstudaginn, video og eitthvað :)
Á laugardaginn vorum ég og gamli að keyra skít uppi í Austurhlíð.. Það hafa ekki verið skepnur í því húsi í nokkur ár og það var því mjöög þykkt og erfitt viðureignar að tæma það, við reyndar tæmdum það ekki því okkur vantaði skrúfuna til að hræra í því! Vorum bara með gömlu Alfa laval dæluna frá búnaðarfélaginu sem er ekki að gera sig í svona aðstæðum!! Ég notaði Fendtinn við að hræra og keyrði út með John Deere 6920 og 18 tonna redrock sugunni.
Um kvöldið ætluðum við Elísabet mín að fara í bíó eeeen misstum af bíóinu..... Skiptir ekki máli af hverju!!
Þannig að við enduðum bara uppstríluð og fín á rúntinum í klukkutíma og tókum enn eina spóluna :)
Í dag vöknuðum við snemma.. Nánar tiltekið hálf 2!! Drifum okkur í bæinn að reyna að versla okkur eitthvað, keyptum reyndar lítið en skoðuðum mikið fyrir jólin! :) Fórum svo að athuga ísskápamál.. Enn eina ferðina.. Ég ætla ekki að fara út í þessa ísskápaumræðu hérna!! Ég fæ nóg af því heima fyrir! Ég vildi bara að Elísabet kynni betur á málmband þannig að við þyrftum ekki að vera í öllu þessu VESENI!! Hehe
Við enduðum í mat hjá tengdó og fórum heim með fullt fangið af mat þó við höfum verið búin að afþakka nokkur fiskflök og hálfan poka af súpukjöti..
Þetta er að mínu mati ágætis bloggbyrjun.. Nú ætla ég að fara að stjana við Elísabetu!
